Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 22. maí 2026 22:00
Kári Snorrason
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
„Ef þú ferð of nálægt sólinni með vængi úr vaxi þá geta þeir bráðnað“
Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Breki Kárason skoraði tvö mörk í kvöld.
Sigurður Breki Kárason skoraði tvö mörk í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tapaði 6-3 fyrir Breiðabliki á Kópavogsvelli fyrr í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir leik.

Óskar var ósáttur með spilamennsku síns liðs og sagði leikinn hafa verið kennslustund í auðmýkt.

Lestu um leikinn: Breiðablik 6 -  3 KR

„Ef maður reynir að greina þetta beint eftir leik þá vorum við ekki klárir að mæta þeim. Við vorum eftir á í öllum aðgerðum. Vörðumst illa, vantaði hreyfingu á boltann. Þetta var léleg frammistaða, það er hægt að segja það. Plús það að Blikaliðið spilaði vel,“ segir Óskar.

Mun svona tap leggjast þungt á hópinn?
„Það held ég ekki. Við erum með svarta beltið í að tapa fótboltaleikjum frá því í fyrra. Ég yrði mjög hissa ef þetta myndi leggjast þungt á hópinn.“

Tap kvöldsins er fyrsta tap KR í deild á tímabilinu.
„Það er svo hættulegt alltaf þegar það er búið að ganga rosalega vel. Allir í himnaríki og svo taparu einum leik. Það er auðvitað leiðinlegt að tapa eins og við töpum en hvað áttu að gera? Áttu að fara heim og hýða þig með belti?“

„Eigum við að finnast allt ömurlegt og leggjast undir sæng? Ég held ekki. Við verðum að viðurkenna að við vorum ekki nægilega góðir. Þetta var kennslustund í auðmýkt. Ef þú ferð of nálægt sólinni með vængi úr vaxi þá geta þeir bráðnað. Það er ekki höggið sem skilgreinir okkur heldur hvernig við stöndum upp,“
sagði Óskar að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner