Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   lau 23. maí 2026 00:18
Gylfi Már Þórðarson
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Lengjudeildin
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, var ekki sáttur með leik sinna manna gegn ÍR á Þarfaþingsvellinum í Breiðholti í dag.

"Ég eiginlega trúi því ekki að þetta hafi gerst, ég trúi því ekki að við höfum ekki gert betur en þetta og eiginlega allt sem við töluðum um fyrir leik, í gær, í dag, í hálfleik og ég veit ekki hvað og hvað, það eru nokkrir hlutir sem við vitum að þeir gera og við náum ekki að takast á við það eða koma nálægt því. Það þýðir ekki að taka ekki baráttuna og vinna ekki fyrsta og annan boltann eða vera nálægt þeim á því augnabliki þá er ÍR að fara að refsa okkur" sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK um frammistöðu sinna manna gegn ÍR í dag.

Lestu um leikinn: ÍR 3 -  1 HK

"Við bara mættum þeim ekki í þessum bardaga. Við vitum að þeir eru beinskeittir og eru með leikmenn sem eru tilbúnir að hlaupa og berjast fyrir liðið sitt. Mér fannst við ekki takast á við það. Ég var ánægður með fyrri hluta fyrri hálfleiks þar sem við vorum að skapa færin, búa til góðar stöður og áttum skot í stöng. Mörk breyta leikjum og við náðum ekki þessu fyrsta marki og þá fórum við að elta og urðum bara pinkulitlir í okkur eftir þetta fyrsta mark hjá þeim."

Aðspurður hvort eitthvað jákvætt væri hægt að taka úr leiknum stóð ekki á svörum. "Ekki neitt"

Fullt viðtal við Gunnar er í spilaranum hér að ofan
Slapp
banner