Southend United er búið að reka goðsagnakenndan þjálfara sinn Kevin Maher aðeins nokkrum dögum eftir sögulegan sigur í úrslitaleik FA Trophy á Wembley.
Maher, sem er 49 ára gamall, er rekinn eftir tæplega fimm ár við stjórnvölinn, en hann lék fyrir Southend í heilan áratug á ferli sínum sem leikmaður. Maher lék 454 leiki fyrir félagið í þremur mismunandi deildarkeppnum frá 1997 til 2008 og tók svo við stjórn á liðinu í október 2021.
Southend hefur verið fast í National League deildinni, þeirri fimmtu efstu í enska boltanum, síðan Maher tók við. Hann hefur stýrt liðinu í umspilssæti síðustu tvær leiktíðir, án þess þó að komast upp um deild.
Stjórnendur Southend vilja sjá liðið fara upp í League Two deildina og hafa því ákveðið að skipta um þjálfara.
Þessi ákvörðun vekur sérstaklega mikla athygli í ljósi þess að Maher er rekinn aðeins nokkrum dögum eftir að hafa hampað fyrsta bikartitli í sögu félagsins.
Southend lagði Wealdstone að velli eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleik FA Trophy um helgina en það er ekki nóg fyrir stjórnina sem vill sjá meiri framfarir í árangri liðsins í deildarkeppni.
„Stjórnin hefur ákveðið að þetta er rétti tímapunkturinn til að byrja næsta kafla í sögu Southend United. Núna hefst allsherjarleit að nýjum aðalþjálfara," segir meðal annars í yfirlýsingu frá félaginu.
Til gamans má geta að Maher er leikjahæstur í 120 ára sögu Southend United ef leikirnir sem hann þjálfaði liðið og spilaði eru lagðir saman.



