Barcelona þokast nær því að ganga frá kaupum á Marcus Rashford sem gerði góða hluti á láni hjá liðinu á tímabilinu.
Manchester United vill fá 30 milljónir evra fyrir kantmanninn sinn og eru Börsungar reiðubúnir til að greiða þá upphæð. Vandamálið er að Spánarmeistaranir vilja fá að dreifa greiðslunum, eitthvað sem Rauðu djöflarnir eru ekki tilbúnir að samþykkja. Þeir vilja alla upphæðina í einni greiðslu.
Þeim þykja 30 milljónir evra vera lág upphæð fyrir leikmann sem býr yfir sömu gæðum og Rashford, en talið er að hann eigi ekki afturkvæmt í leikmannahópinn hjá uppeldisfélaginu.
Rashford er búinn að samþykkja samning hjá Barcelona þar sem hann fær umtalsvert lægri laun heldur en í Manchester. Nú er undir félagsliðunum komið að finna samkomulag.
29.04.2026 07:30
Rashford tilbúinn að helminga launin sín




