Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fös 22. maí 2026 09:39
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Tugir þúsunda hylltu Evrópumeistarana í Birmingham
Mynd: EPA
Yfir 20 þúsund manns komu saman á Aldarafmælistorginu í Birmingham til að hylla leikmenn Aston Villa sem tryggðu sér Evrópudeildarmeistaratitilinn með því að vinna Freiburg 3-0 í vikunni.

Leikmenn Villa voru keyrðir um á þaklausum strætisvagni og stemningin í borginni var framúrskarandi.

Á torginu var bikarnum lyft og Unai Emery, stjóri Villa, ávarpaði mannfjöldann.

Hann sagði það frábært að deila sigrinum með stuðningsmönnum. „Við erum svo stolt af ykkur. Ykkar hjarta er okkar hjarta. Okkar hjarta er ykkar hjarta," sagði Emery.
Slapp
banner