Fyrr í morgun var tilkynnt um að Michael Carrick hafi fengið nýjan sem stjóri Manchester United.
Hann tók við liðinu í janúar sem bráðabirgðastjóri og var verðlaunaður með nýjum samningi fyrir góðan árangur. Carrick segir í viðtali við miðla Man Utd tímabært að félagið fari að berjast um stærstu titlana.

„Frá því ég kom hingað fyrir 20 árum hef ég fundið fyrir töfrunum sem eru í Manchester United. Ég er mjög stoltur að fá að leiða þetta sérstaka félag.
Síðustu fimm mánuði hefur þessi leikmannahópur sýnt þá seiglu, samheldni og vilja sem við krefjumst hér,“ sagði Carrick og hélt áfram.
„Nú er kominn tími til að halda áfram saman, með metnað og skýra sýn. Manchester United og frábærir stuðningsmenn félagsins eiga skilið að berjast aftur um stærstu titlana,“ sagði Carrick jafnframt.
Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá Manchester United, segir Carrick hafa unnið sér inn tækifærið og segir Carrick hafa byggt upp ákveðna sigurmenningu á ný.