Richard Sæþór Sigurðsson, 18 ára leikmaður ÍBV skoraði tvö mörk á tveimur mínútum í 6-0 sigri á Létti í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Hann hafði nýkomið inná sem varamaður áður en hann skoraði mörkin á 87. og 88. mínútu leiksins.
Lestu um leikinn: Léttir 0 - 6 ÍBV
„Við lögðum upp með að pressa þá frá byrjun. Síðan urðu þeir þreyttir og við settum nokkur í restina. Við vorum með stjórn á leiknum allan leikinn."
„Fyrsti leikur og það var gaman að ná að skora, það skemmir ekki fyrir. Þetta kom svolítið snöggt, það gerir þetta enn skemmtilegra," sagði Richard Sæþór.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.





















