Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   fös 03. júlí 2015 22:05
Aron Elvar Finnsson
Donni: Þjálfarinn ákvað vítaskyttuna og tekur þetta á sig
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Ég er ótrúlega svekktur með að jafna ekki leikinn, við áttum ekki endilega skilið að vinna en úr því sem komið var þá áttum við algjörlega skilið að skora úr vítinu sem við fáum og það er óhætt að segja að það séu svakaleg vonbrigði,” sagði Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Þórs eftir 2-3 tap gegn Grindavík nú í kvöld.

Lestu um leikinn: Þór 2 -  3 Grindavík

„Þeir lögðu grunninn að þessu í fyrri hálfleik. Við vorum ekki nógu agressívir og nógu öflugir í fyrri hálfleik í varnarvinnunni og í rauninni sóknarvinnunni líka. En við komum sterkir til baka og þeir sýndu mikinn karakter að ná þessari stöðu að geta jafnað leikinn á lokamínútunum, sem er erfitt að komast í því það er auðveldara að gefast upp og grenja,” sagði Donni einnig.

Aðspurður hvort Jóhann Helgi Hannesson, sem klúðraði vítinu, sé aðal vítaskytta liðsins sagði Donni: ,,Jóhann hefur verið aðal vítaskytta liðsins já, engin spurning.”

Balázs Tóth meiddist og þurfti að fara af velli í leiknum. Aðspurður um meiðsli hans sagði Donni: „Hann tognaði framan í læri þannig að ég geri ráð fyrir því að hann verði eitthvað frá. Enn ein meiðslin í varnarlínunni, þetta hjálpar ekki nokkrum manni, nema kannski hinum liðunum. Við höfum átt í gríðarlegum erfiðleikum með varnarlínuna að reyna að stabílasera það að einhverju leyti og það virðist vera áframhald á því.”

Nánar er rætt við Donna hér að ofan.
Athugasemdir
banner