Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur?
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
   fös 03. október 2014 21:00
Alexander Freyr Tamimi
Veigar Páll: FH getur tapað titlinum og við unnið hann
Veigar Páll Gunnarsson.
Veigar Páll Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Veigar Páll Gunnarsson, sóknarmaður Stjörnunnar, segir að öll pressan sé á FH fyrir úrslitaleik liðanna í Pepsi-deildinni sem fram fer í Kaplakrika klukkan 16:00 á morgun.

FH er tveimur stigum á undan Stjörnunni fyrir þennan magnaða leik, þar sem Íslandsmótið mun ráðast, og að mati Veigars hafa Garðbæingarnir allt að vinna.

,,Þetta leggst bara vel í mig. Ég er spenntur fyrir leiknum og við lítum á þennan leik sem gleði og skemmtun frekar en að detta í einhvern stress pakka og skíta á sig í leiknum," sagði Veigar Páll við Fótbolta.net.

,,Að mínu mati er mun meiri pressa á FH-ingum. Ég lít á þetta þannig að þeir hafa öllu að tapa, þeir geta þannig séð tapað titlinum en við getum bara unnið titilinn. Þannig að sjálfsögðu er pressan meiri á FH."

,,Þeim nægir jafntefli, ég hefði varla kosið það að fara inn í leikinn og duga jafntefli. Það er oft sem maður dettur ósjálfrátt niður og leggst bara í vörn, það er alltaf hættulegt. Það ýtir meira á okkur að leggja okkur 100 prósent fram að við þurfum sigur."

,,Að sjálfsögðu yrði það alveg skelfilega svekkjandi ef við myndum missa af titlinum, en ég er engu að síður hrikalega stoltur yfir tímabilinu. Ef við tökum þetta á morgun, þá myndi ég næstum því segja að þetta sé fullkomið tímabil."
Slapp
banner