,,Við héldum hreinu eins og við ætluðum að gera. Ég er sáttur með það. Við fengum tvö góð færi í fyrri hálfleik en nýttum þau ekki og ég er sáttur með að fara með 0-0 í Vesturbæinn", sagði Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari KR eftir markalaust jafntefli við HK/Víking í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í efstu deild.
KR fékk besta færi leiksins en liðið misnotaði vítaspyrnu á 16. mínútu. Við spurðum Björgin Karl út í vítaspyrnuna.
,,Þetta var náttúrulega pjúrað víti og náttúrulega bara leiðinlegt að klára það ekki. Við hefðum átt að setja'nn og vera kannski aðeins grimmari í sóknarleiknum. Í seinni hálfleik vantaði að halda boltanum aðeins betur þegar við vorum komnar á síðasta vallarþriðjung og gera betur þar. Þá hefðum við verið í fínum málum."
Björgvin Karl var búinn að kynna sér lið andstæðinganna vel fyrir leikinn og segir að sama gildi um Ragnar Gíslason þjálfara HK/Víkings.
,,Mjög mikið og sem betur fer fengum við HK/Víking en ekki Fjölni því ég var ekkert búinn að skoða Fjölni. En jú, ég var búin að skoða þær mjög mikið og ég held að Raggi hafi gert það sama. Það sást kannski á leik liðanna. Þetta var eins og góð skák sem endaði með jafntefli. Það kom mér ekkert á óvart."
Björgvin Karl vonast til þess að heimavöllurinn hjálpi KR-ingum á þriðjudag þegar síðari viðureign liðanna fer fram. Leiktíminn er heldur óvenjulegur eða kl.16:30 en Björgvin Karl bindur engu síður vonir við að fólk fjölmenni á völlinn.
Auðvitað skiptir það máli að eiga heimaleikinn eftir. Það er okkar völlur og við erum vanar að spila þar og vonandi fáum við fullt af fólki þó að leikurinn sé á leiðinlegum tíma. Ég ætla að vona að allir vesturbæingar, KR-ingar, fjölskyldur og vinir fjölmenni og hvetji okkur áfram og hjálpi okkur að komast þangað sem við viljum vera."
Mikið hefur verið rætt um fyrirkomulag 1. deildar kvenna þar sem úrslitin ráðast í tveimur umspilsleikjum en ekki út frá árangri tímabilsins í heild. Margir vilja meina að fyrirkomulagið sé barn síns tíma og Björgvin Karl er einn þeirra sem vill bæta við þriðju deildinni kvennamegin.
,,Þetta er náttúrulega bara fyrirkomulag sem KSÍ er búið að vera með lengi. Sanngjarnt og ekki sanngjarnt. Það er erfitt að dæma um það en það er löngu tímabært að koma með 12 liða deild í efstu deild og 1. deild og 2. deild. Búa til þrjár deildir kvennamegin og gera þetta almennilega eins og er gert karlamegin."
,,Það yrðu betri lið í 1. deildinni og þó að það sé ennþá einhver smotterís munur á efri og neðri liðum efstu deild. Það yrði bara fljótt að jafnast út."
Þær Sonja Björk Jóhannsdóttir og Lidija Stojkanovic lentu í samstuði í síðari hálfleik og fengu báðar þungt högg á höfuðið. Báðar voru þær fluttar burt í sjúkrabíl og við spurðum Björgvin Karl að lokum um afdrif Sonju Bjarkar.
,,Sonja og Lidija voru báðar með sirka 8-10 sentimetra skurð. Önnur á enninu og hin við gagnaugað þannig að við verðum bara að bíða og sjá hvernig það verður."
Hægt er að horfa á viðtalið við Björgin Karl í sjónvarpinu hér að ofan.
























