Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   sun 08. mars 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kokkurinn krefur Neymar um miskabætur
Mynd: EPA
Brasilíska fótboltastjarnan Neymar liggur undir ákæru frá fyrrum einkakokki sínum.

Kokkurinn sakar Neymar um að hafa þrælað sér út og vanvirt samninginn sem var þeirra á milli. Hún vill fá um 43 þúsund evrur í bætur, sem samsvara rúmlega 6 milljónum króna.

Kokkurinn fékk rétt rúmlega 1200 evrur í mánaðarlaun frá Neymar fyrir 100% starf en var oft látin þræla sér út í 14 til 16 tíma á dag til að fæða Neymar og vini hans og starfsmenn.

Hún starfaði fyrir Neymar í villu hans í Rio de Janeiro og átti vinnutíminn hennar að vera frá 7 á morgnana til 5 á daginn alla virka daga nema föstudaga, þegar hún átti að vinna frá 7 til 4.

Hún heldur því fram að raunveruleikinn hafi verið allt annar og hún hafi sjaldan fengið greidda yfirvinnu. Þá heldur hún einnig fram að hún hafi vanalega þurft að vinna í gegnum hádegismatinn sinn til að verða við beiðnum Neymar og vina hans.

Hún færir rök fyrir því að öll þessi vinna hafi skaðað hana líkamlega, hún hafi þurft að taka á móti þungum pokum af kjöti og öðrum matvörum oft á dag sem hafi á endanum farið illa með bakið hennar.

Hún neyddist til að standa klukkustundum saman án þess að geta setist niður vegna mikillar vinnu. Hún er með læknisbréf sem segir frá slæmum bak- og mjaðmaverkjum vegna of mikils vinnuálags.

Neymar hefur neitað að tjá sig um málið, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er sakaður um að fara illa með starfsfólkið sitt.

Seint árs 2023 var fyrrum eldhússtarfsmaður Neymar í Frakklandi sem kærði hann og krafðist 368 þúsund evra í miskabætur. Það mál er enn í gangi og sakar starfsmaðurinn Neymar um að stunda 'nútíma þrældóm'.
Athugasemdir
banner
banner