Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur?
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
   sun 10. maí 2015 22:35
Jóhann Ingi Hafþórsson
Óli Þórðar: Engin stórkostleg læti
Ólafur Þórðarsson
Ólafur Þórðarsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ólafur Þórðarsson, þjálfari Víkinga gat verið sáttur eftir 2-2 jafntefli sinna manna gegn Val í kvöld en Valur komst í 2-0 í fyrri hálfleik.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  2 Valur

„Já, úr því sem komið var, við hins vegar lögðum upp með að fá þrjú stig úr þessum leik. Fyrri hálfleikurinn var mjög erfiður og við virtumst ekki vera klárir að mæta þeim."

„Við vorum ekki tilbúnir að berjast. Við gáfum þeim hrikalega auðvelt fyrsta mark sem var algjört klúður hjá okkur. Okkur var refsað fyrir mistökin og við misstum hausinn við það."

Óli segir að Víkings liðið hefði getað fengið enn meira úr leiknum.

„Við fengum tvö dauðafæri í byrjun seinni hálfleiks. Það er ljóst að það verður mjög erfiður leikur, þeir eru með gott lið."

Óli vildi ekki fara mikið í hálfleiksræðu sína í kvöld.

„Ég þarf ekkert að ræða hana hér, við fórum vel yfir stöðuna í hálfleik en það voru svo sem engin stórkostleg læti."

Slapp
banner