Arnór Ingvi Traustason var ekki lengi að láta til sín taka í endurkomu sinni í Bestu deildina.
Arnór Ingvi gekk í raðir KR í vetur eftir langan og farsælan feril í atvinnumennsku.
Arnór Ingvi gekk í raðir KR í vetur eftir langan og farsælan feril í atvinnumennsku.
Lestu um leikinn: KR 3 - 2 Keflavík
Hann er núna að spila sinn fyrsta leik í 13 ár í efstu deild á Íslandi en síðast spilaði hann með Keflavík. Núna er hann einmitt að spila með KR gegn Keflavík en hann skoraði eftir aðeins sex mínútna leik.
„Arnór Ingvi skorar sitt fyrsta mark fyrir KR!" skrifaði Kári Snorrason í beinni textalýsingu frá leiknum.
„Gabríel Hrannar með frábæra fyrirgjöf á fjærsvæðið. Eiður Gauti skallar boltann fyrir markið og þar er Arnór Ingvi sem skallar boltann í netið af stuttu færi."


