Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 10:20
Snæbjört Pálsdóttir
Hafrún um nýjan samning: Ég er að bæta mig á hverjum degi
Eimskip
Hafrún Rakel hefur skrifað undir nýjan samning í Danmörku og er ánægð með þróun sína.
Hafrún Rakel hefur skrifað undir nýjan samning í Danmörku og er ánægð með þróun sína.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðskonan Hafrún Rakel Halldórsdóttir skrifaði nýverið undir nýjan samning við Brøndby í Danmörku og segir skrefið hafa verið það rétta á sínum ferli.

„Þetta er bara geggjað. Ég er mjög ánægð og finnst ég vera að bæta mig á hverjum degi þar. Þannig þetta var rétt ákvörðun fyrir mig núna að skrifa undir,“ sagði Hafrún.


Hún segir dönsku deildina vera jafnari en hún átti von á og krefjandi fyrir leikmenn.

„Mér finnst margir leikir mjög jafnir, það eru mörg góð lið. Við erum að mæta í hvern einasta leik sem úrslitaleik.“

Daglegt líf atvinnumannsins er þó rólegra en margir halda.

„Bara mjög rólegur í raun og veru. Bara vakna, fara á æfingu og svo er ég í námi, þannig bara blanda af því að læra, æfa og borða.“

Hafrún segir sjálfstraust og hugrekki lykilatriði fyrir unga leikmenn á Íslandi sem stefna á atvinnumennsku.

„Bara þora í raun og veru. Sjálfstraust, halda áfram, gefast ekki upp og ekki vera of harðar við sjálfa ykkur.“


Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Slapp
banner