Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
   lau 11. apríl 2026 19:14
Snæbjört Pálsdóttir
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Eimskip
Hafrún Rakel segir íslenska liðið þurfa að vera klárt frá fyrstu mínútu gegn Úkraínu.
Hafrún Rakel segir íslenska liðið þurfa að vera klárt frá fyrstu mínútu gegn Úkraínu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hafrún Rakel vonast til að stuðningur úr stúkunni gefi liðinu aukakraft í heimaleikjunum.
Hafrún Rakel vonast til að stuðningur úr stúkunni gefi liðinu aukakraft í heimaleikjunum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hafrún Rakel segir íslenska landsliðið klárt í slaginn fyrir komandi heimaleik gegn Úkraínu, þar sem mikið er undir í baráttunni um úrslit í riðlinum.

„Bara mjög vel. Ég er bjartsýn og við erum klárar í slaginn og bara ógeðslega spenntar fyrir þessu,“ sagði Hafrún þegar Fótbolti.net ræddi við hana.


Að hennar sögn hefur undirbúningurinn gengið vel og stemningin í hópnum sé sterk.

„Hún er mjög góð, við erum búnar að æfa vel og bara góð stemming. Við erum klárar í að sýna hvað við getum núna.“

Leikurinn gegn Úkraínu er lykilleikur og segir Hafrún að liðið þurfi að vera tilbúið frá fyrstu mínútu.

„Vera klárar strax frá fyrstu mínútu. Þær eru góðar og góðar að pressa, þær eru duglegar þannig að við þurfum bara að matcha það. Sýna að við erum betra lið og klára leikinn.“

Hún segir liðið hafa lært mikið af síðasta landsliðsglugga.

„Við erum búin að matcha okkur við betri lið og sjáum svolítið hvað þær geta. En núna er fókusinn bara á Úkraínu og klára það fyrst.“

Stuðningur úr stúkunni getur skipt sköpum að hennar mati.

„Hann skiptir ótrúlega miklu máli. Hann getur gefið okkur extra upp á það að vera tilbúnar að berjast.“

Til að trekkja að stuðningmenn var opin æfing og áritanir frá stelpunum okkar, hún vonast til að sjá þá stemmingu skila sér á völlinn.

„Ég sagði allavega við alla, sjáumst á þriðjudaginn! Þannig að vonandi kemur þetta fólk á völlinn og ennþá fleiri.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner