Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   sun 12. apríl 2026 16:05
Ívan Guðjón Baldursson
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Mynd: FH
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH svaraði spurningum eftir 1-1 jafntefli á útivelli gegn ÍBV í fyrstu umferð á nýju tímabili í Bestu deild karla.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 FH

Jói Kalli var óhress með frammistöðu sinna manna í fyrri hálfleik en ánægður með seinni hálfleikinn. Hann er þó svekktur að hafa ekki náð sigurmarki undir lok leiksins.

„Við vorum ekki við sjálfir í fyrri hálfleik, við vorum alls ekki sáttir með okkar leik hvorki með né án boltans. ÍBV var eiginlega við stjórnvölinn allan fyrri hálfleikinn," sagði Jói, sem var þó ánægður með frammistöðuna eftir leikhlé. „Við ræddum þetta í leikhlénu og það var allt annað uppi á teningnum í seinni hálfleik. Ég get ekki gert annað en að hrósa mínum mönnum sem komu út í seinni hálfleikinn og leikmönnunum sem komu inná því að þegar uppi er staðið hefðum við getað unnið þennan leik.

„Við klúðrum víti og skorum jöfnunarmark eftir það sem sýnir mikinn karakter og fáum svo tvö önnur góð færi til að vinna leikinn undir lokin."


Markavélin fyrrverandi Tryggvi Guðmundsson tók viðtal við Jóhannes Karl að leikslokum og nefndi að FH vantaði alvöru 'striker' í sínar raðir til að klára færin sem fóru forgörðum í dag.

„Það hefur alveg verið eitthvað talað um það að okkur vanti meiri kraft þarna fram á við. Flóki er hörkuleikmaður og Sverrir Páll kemur inná í lokin líka og það er alveg erfitt að eiga við þá. Við viljum hafa fjölbreytta möguleika þarna fram á við og við erum alveg með það í hópnum nú þegar."
Slapp
banner