Það var heldur betur leikur tveggja hálfleikja í Dal Draumanna hér í kvöld þegar liðin fóru inn í búningsklefa í stöðunni 0-0 en staðan orðin 3-3 í leikslok.
„Hann var kaflaskiptur. Hann var góður af okkar hálfu framan af. Eftir að við komumst 3-1 yfir þá fóru við kannski að verja þetta heldur mikið í staðinn fyrir að reyna að halda boltanum og spila boltanum", sagði Lárus Orri þjálfari ÍA um seinni hálfleikinn.

Lestu um leikinn: Fram 3 - 3 ÍA
Athygli vakti að Markús Páll var í byrjunarliðinu í annað skipti í röð og er honum greinilega ætlað að spila við hlið Viktors Jónssonar í sumar, staða sem Ómar Björn sinnti vel á köflum í fyrra.
„Ómar hefur aldrei spilað frammi hjá okkur, hann hefur alltaf spilað á kantinum og Markús er ekki að koma í staðinn fyrir Ómar. Markús og Viktor spiluðu mjög vel saman og það sem þið sáu úti á velli hér í dag erum við búnir að sjá á æfingu."
„Hann er duglegur varnarlega, með flott hlaup. Ef hann heldur svona áfram þá er björt framtíð."
Fyrir utan Markús Pál þá voru þrír aðrir nýir leikmenn sem ÍA fékk til sín í sumar. Þeir Böðvar Böðvarsson, Guðmundur Þórarinsson og Gísli Eyjólfsson.
„Þeir hafa smollið inn í þetta uppi á Skaga og hafa lyft liðinu upp á næsta stall. Þetta eru hörkuleikmenn allir þrír."