Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   sun 12. apríl 2026 22:22
Alexander Tonini
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Rúnar Kristinsson og Helgi Sigurðsson að ræða málin
Rúnar Kristinsson og Helgi Sigurðsson að ræða málin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er í raun það eina sem ég er ánægður með", sagði Rúnar Kristinsson eftir leik þar sem Framarar náðu að jafna leikinn og bjarga stigi eftir að hafa lent undir 1-3 á heimvelli.

Markús Páll Ellertsson skoraði tvennu gegn uppeldisfélaginu og var Rúnar spurður hvort að Fram hefði reynt að sækja hann.

„Við vissum ekki einu sinni að hann væri að koma til landsins þannig að það stóð aldrei til boða."

Lestu um leikinn: Fram 3 -  3 ÍA

Fyrir leik hafði Rúnar orð á því að varnarleikurinn hefði ekki verið eins og skyldi á undirbúningstímabilinu þar sem Fram væri ekki þekkt fyrir að gefa mörg mörk.

„Við höfum verið að fá mikið af mörkum á okkur og maður var að vonast til að þegar deildin byrjaði og meiri alvarleiki á bak við hlutina að við myndum ná að stoppa þessi göt. Við höfum ekki verið frægir fyrir að fá mikið af mörkum á okkur"

En hvernig hyggst Rúnar laga varnarleikinn?

„Ég ætla alla veganna ekki að bæta við sjötta varnarmanninum við í liðið", sagði Rúnar að lokum.
Slapp
banner
banner