Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
banner
   mán 13. apríl 2026 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stjörnumenn funduðu eftir mörk KA - „Hættið þessu!"
Dómari leiksins stöðvaði fundarhöldin í seinna skiptið.
Dómari leiksins stöðvaði fundarhöldin í seinna skiptið.
Mynd: Skjáskot/SÝN Sport
Eftir mörk KA í gær komu leikmenn Stjörnunnar saman og funduðu áður en leikurinn gat farið af stað á ný.

Þetta fór í taugarnar á áhorfendum og leikmönnum KA á Greifavellinum. Þetta var til umræðu í Stúkunni á SÝN Sport.

Lestu um leikinn: KA 2 -  3 Stjarnan

„Það er alveg sérstakt þar sem það er verið flýta öllu núna, dómarinn að telja niður (í mörgum atriðum) og það er allt frábært, gott að setja meiri hraða í leikinn. Þeir fundu glufu þar sem dómarinn er ekki að telja niður. Þegar þeir fengu á sig þessi tvö mörk þá tóku þeir fund. Í seinna skiptið þá var dómaranum nóg boðið og sagði þeim að hætta þessu: „Hættið þessu, það eru engin fundarhöld hérna, hættið þessu!" ákvað Bjarni Guðjónsson að dómari leiksins, Arnar Þór Stefánsson, hefði sagt við leikmenn Stjörnunnar.

„Þetta er greinilega eitthvað fyrirfram ákveðið að núllstilla sig eftir mörk, eitthvað andlegt," sagði Baldur Sigurðsson.

„Það yrði fróðlegt ef dómararnir fara að telja niður svo leikurinn geti farið af stað eftir fundarhöld," sagði Bjarni á léttu nótunum.
Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val
Slapp
banner
banner