Leiknir og HK gerðu 2-2 jafntefli í 1. deildinni í dag í næstsíðustu umferð deildarinnar. Úrslitin í deildinni eru ráðin en eftir úrslit dagsins er ljóst að Leikni nægir jafntefli gegn Tindastóli í lokaumferð til að tryggja sér sigur í deildinni.
Sindri Björnsson jafnaði fyrir Leikni í leiknum í dag og tryggði jafnteflið.
„Það var lítil ró í þessum leik. Við spiluðum vel í dag og bæði lið hefðu getað skorað fleiri mörk. Eyjó (Eyjólfur Tómasson) bjargaði stigi fyrir okkur í lokin og átti nokkrar heimsklassa vörslur," sagði Sindri eftir leik.
„Ég hefði getað skorað þrjú eða fjögur mörk hefði ég hitt á góðan dag hjá mér. Eitt dugar í dag."
„Það kemur ekki annað til greina en að klára þetta með því að taka dolluna. Það er allt hægt í þessu. Við getum alveg tapað fyrir Tindastóli en við ætlum að valta yfir þá."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.






















