Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 18:10
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Ekitike og Isak fremstir - Salah aftur á bekknum
Alexander Isak byrjar hjá Liverpool
Alexander Isak byrjar hjá Liverpool
Mynd: EPA
Marcus Rashford er á bekknum hjá Barcelona
Marcus Rashford er á bekknum hjá Barcelona
Mynd: EPA
Í kvöld munu tvö lið komast áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu en Englandsmeistarar Liverpool eru með bakið upp við vegg.

Liverpool tekur á móti Evrópumeisturum Paris Saint-Germain klukkan 19:00. Fyrri leiknum lauk með 2-0 sigri PSG og var það bara nokkuð vel sloppið hjá Liverpool miðað við færin sem franska liðið fékk.

Arne Slot gerir nokkrar breytingar á byrjunarliðinu, en Alexander Isak er að byrja sinn fyrsta leik síðan í desember og þá verður Hugo Ekitike með honum í fremstu víglínu. Milos Kerkez er í vinstri bakverðinum og þá kemur Ryan Gravenberch einnig inn. Mohamed Salah er aftur á bekknum gegn PSG.

Athygli vekur þá að hinn 17 ára Rio Ngumoha er á bekknum eftir að hafa verið maður leiksins í 2-0 sigrinum á Fulham um helgina.

Lið PSG er óbreytt frá síðasta leik.

Marcus Rashford og Robert Lewandowski detta á bekkinn hjá Barcelona sem heimsækir Atlético Madríd. Pau Cubarsi er í leikbanni eftir að hafa fengið rautt í fyrri leiknum.

Gavi, Fermin Lopez og Ferran Torres koma inn í stað þeirra.

Aðeins ein breyting er gerð á liði Atlético en David Hancko meiddist í fyrri leiknum og er ekki með. Clement Lenglet kemur inn í vörnina í hans stað.

Atlético leiðir einvígið, 2-0, en seinni leikurinn er spilaður á heimavelli Atlético í Madríd.

Liverpool: Mamardashvili; Frimpong, Konate, Van Dijk, Kerkez; Szoboszlai, Gravenberch, Mac Allister; Wirtz; Ekitike, Isak.

PSG: Safonov; Hakimi, Marquinhos, Pacho, Mendes; Zaire-Emery, Vitinha, Neves; Doue, Dembele, Kvaratskhelia

Atlético: Musso, Molina, Le Normand, Lenglet, Ruggeri, Simeone, Llorente, Koke, Griezmann, Lookman, Alvarez.

Barcelona: Joan Garcia, Kounde, Eric Garcia, Martin, Cancelo, Pedri, Gavi, Fermin Lopez, Olmo, Ferran Torres, Yamal.
Slapp
banner
banner