Robinho Jr, sonur fyrrum leikmannsins Robinho, hefur ásakað Neymar um líkamlegt og andlegt ofbeldi á æfingu Santos á sunnudag. Það er Globo sem segir frá þessu.
Föruneyti Robinho Jr. sendi Santos formlega kvörtun vegna hegðunar Neymars á sunnudag.
Í skjalinu kemur fram að umboðsmenn hafi kallað eftir því að rifta samningnum við Santos vegna skorts á lágmarks skilyrðum þegar það kemur að öryggi.
Samkvæmt Robinho Jr. þá átti Neymar að hafa látið móðgandi ummæli falla ásamt því að hafa fellt og slegið leikmanninn á æfingunni.
Erlendir miðlar hafa sagt frá því að Neymar hafi beðið Robinho Jr. afsökunar í búningsklefanum.
Föruneyti Robinho Jr. fer fram á fernt við Santos, en það vill að félagið hefji rannsókn á málinu, útvegi myndefni af æfingunni, yfirlýsingu varðandi þær ráðstafanir sem skal grípa til og bóka fund varðandi mögulega riftun á samningi.
Samband Neymars og Robinho er mjög gott og er Neymar hálfgerður guðfaðir drengsins. Á æfingunni hafi hins vegar Neymar vera orðinn pirraður á því að sá ungi væri trekk í trekk að leika á hann sem hafi orðið til þess að hann sló og felldi leikmanninn.
Santos hefur neitað að tjá sig um málið til þessa, en það leit svo á að málinu væri lokið eftir afsökunarbeiðni Neymars.
Robinho Jr. er sonur fyrrum fótboltamannsins og nafna, Robinho, sem situr nú á bak við lás og slá fyrir að hafa nauðgað konu á skemmtistað í Mílanó árið 2013. Hann lék með Neymar hjá Santos og í brasilíska landsliðinu.
Neymar og sonur Robinho ferðuðust báðir með Santos til Paragvæ þar sem liðið spilar við Recoleta í D-riðli Copa Sudamericana.




