Milan Tomic, leikmaður ÍBV, er fyrsti leikmaður Bestu deildarinnar til þess að fara í leikbann vegna uppsafnaðra gulra spjald á þessari leiktíð.
Hann sá gula spjaldið í 2-1 tapi ÍBV gegn Breiðabliki um helgina sem var hans fjórða á tímabilinu.
Tomic sá einnig gult gegn KR, Val og FH, en slapp við spjald á móti Fram í 4. umferð.
Miðjumaðurinn verður því í leikbanni gegn KA þegar liðin mætast á Greifavellinum eftir viku.
Ekki góðar fréttir fyrir Eyjamenn sem eru án sigurs á botninum eftir fimm umferðir.




