Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
   mán 04. maí 2026 22:14
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Betra en að tapa
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, gat ekki kvartað yfir frammistöðunni í 3-3 jafnteflinu gegn Everton í kvöld.

Spánverjinn var ánægður með flest allt í leik sinna manna, en að Everton hafi sýnt meiri grimmd í þeim síðari.

„Rosalega góð frammistaða. Við spiluðum framúrskarandi í fyrri hálfleiknum, en í seinni hálfleik stigu þeir upp og vorum kannski eins grimmir og síðan gefum við þetta mark. Eftir að þeir komast til baka þá spila þeir alvöru enskan leik með grimmd í einvígum. En svona almennt séð spiluðum við mjög vel.“

„Þetta var erfiðara fyrir þá að brjóta okkur niður en fyrir okkur að brjóta þá niður. Við vorum stórkostlegir og vorum oft mættir upp að endalínu, áttum skot og færi. Það er ekki mjög auðvelt því þeir voru að spila mjög varnarlega með tíu leikmenn á bak við boltann og fóru síðan í skyndisóknir með Beto og Dewsbury-Hall. Við tökum stigið og höldum áfram þangað til deildinni lýkur,“
sagði Guardiola.

Hann var spurður út í ljótu tæklinguna á Jeremy Doku undir lok fyrri hálfleiks þar sem Michael Keane sá aðeins gult. Hann vildi ekki ræða það neitt sérstaklega.

„Spekingarnir mega ræða það.“

Englandsmeistaratitillinn er nú í höndum Arsenal.

„Þetta er betra en að tapa. Það sýnir bara hvers konar lið þetta er, en titillinn er ekki í okkar höndum. Hann var það áður, en ekki lengur. Við eigum einhverja leiki eftir og sjáum bara til hvað gerist,“ sagði Guardiola.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner