Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 21:27
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Alexis Sanchez kom Sevilla upp úr fallsæti
Alexis Sanchez fagnar sigurmarki Sevilla í kvöld
Alexis Sanchez fagnar sigurmarki Sevilla í kvöld
Mynd: EPA
Sevilla 1 - 0 Real Sociedad
1-0 Alexis Sanchez ('50 )

Sevilla er komið upp úr fallsæti eftir 1-0 sigur á Real Sociedad í La Liga á Spáni í kvöld.

Sílemaðurinn Alexis Sanchez gerði sigurmark heimamanna á 50. mínútu leiksins eftir arfaslakan varnarleik gestanna. Neil Maupay fékk boltann á teignum og lagði hann út á Sanchez sem skaut föstu skoti í markið.

Lucien Agoume setti boltann í netið þegar tíu mínútur voru eftir markið var dæmt af vegna rangstöðu í aðdragandanum. Sociedad reyndi að sækja jöfnunarmark í restina en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Orri Steinn Óskarsson kom inn af bekknum í hálfleik en hafði ekki úr miklu að moða frekar en aðrir liðsfélagar hans.

Lokatölur 1-0 í Seville-borg og heimamenn komnir upp úr fallsæti og í það 17. með 37 stig, stigi fyrir ofan fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir en Sociedad í 9. sæti með 43 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 34 29 1 4 89 31 +58 88
2 Real Madrid 34 24 5 5 70 31 +39 77
3 Villarreal 34 21 5 8 64 39 +25 68
4 Atletico Madrid 34 19 6 9 58 37 +21 63
5 Betis 34 13 14 7 52 41 +11 53
6 Celta 34 12 11 11 48 44 +4 47
7 Getafe 34 13 5 16 28 36 -8 44
8 Athletic 34 13 5 16 40 50 -10 44
9 Real Sociedad 34 11 10 13 52 53 -1 43
10 Osasuna 34 11 9 14 40 42 -2 42
11 Vallecano 34 10 12 12 35 41 -6 42
12 Valencia 34 10 9 15 37 50 -13 39
13 Espanyol 34 10 9 15 37 51 -14 39
14 Elche 34 9 11 14 45 53 -8 38
15 Mallorca 34 10 8 16 42 51 -9 38
16 Girona 34 9 11 14 36 51 -15 38
17 Sevilla 34 10 7 17 41 55 -14 37
18 Alaves 34 9 9 16 40 53 -13 36
19 Levante 34 8 9 17 38 55 -17 33
20 Oviedo 34 6 10 18 26 54 -28 28
Slapp
banner
banner
banner