Í kvöld kemur í ljós hvaða lið verða fyrst inn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þetta tímabilið.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Gylfi Tryggvason
Liverpool 0 - 2 PSG (0-4)
Sömu yfirburðir og síðast nema aðeins meiri læti í stúkunni á meðan. Liverpool spilar vel fyrstu 20 mín og heldur þessu í 50-50 leik. Svo tekur PSG yfir.
Atletico Madrid 1 - 2 Barcelona (3-2)
Spurning hversu vel Barcelona gengur að spila á hinu loðna grasi í kvöld. Öllum brögðum beitt og ég er farinn að þekkja minn mann Diego Simeone á ný. Auðvitað lokar hann þessu einvígi. Barcelona vinnur samt leikinn og verða með algjöra yfirburði. Hér sjáum við dramatík.
Óskar Smári Haraldsson
Liverpool 0 - 0 PSG (0-2)
Verður mjög fróðlegt hvernig Slot stillir upp og hvaða kerfi hann mun henda í. Liverpool voru töluvert meira opnari en vanalega þegar þeir spiluðu þessa blessuðu fimm manna vörn í síðustu viðureign gegn PSG og eru í brekku. Held að þessi leikur verði bara frekar lokaður og leiðinlegur, Slot mun þó fara aftur í fjögurra manna og ég ætla rétt að vona að menn eins og Robertson og Rio byrji. Hef ekki trú á því þó. 0-0 í boring leik og Enrique og félagar í PSG fara sanngjarnt áfram úr þessu einvígi.
Atletico Madrid 0 - 2 Barcelona (2-2)
Ég klikkaði svakalega hérna í síðustu viku. Atletico geggjaðir og Barca eiga erfiðan leik framundan. Það er þessi 'know how factor' sem mun koma Barca áfram í næstu umferð með spennutrylltum leik þar sem þeir skora seinna markið á 90+ og fara svo áfram eftir framlengingu.
Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool 1 - 1 PSG (1-3)
Þetta verður þægilegt kvöld fyrir PSG. Þeir komast yfir með marki frá Ousmane Dembele. Mohamed Salah jafnar fyrir Liverpool seint í leiknum en lærisveinar Arne Slot komast ekki lengra.
Atletico Madrid 2 - 1 Barcelona (4-1)
Barcelona verður að leggja allt í sölurnar en Diego Simeone elskar ekkert meira en hryðjuverkafótbolta og hann verður í essinu sínu í kvöld. Varnarlína Barcelona verður gífurlega hátt uppi og Atletico nýtir sér það.
Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 25
Fótbolti.net - 20
Gylfi Tryggva - 20

