Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   þri 14. apríl 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stefán Þór framlengir í Breiðholti
Lengjudeildin
Mynd: ÍR
Stefán Þór Pálsson er búinn að skrifa undir nýjan eins árs samning við uppeldisfélagið sitt ÍR.

Stefán Þór, eða Stebbi Páls eins og hann er gjarnan kallaður, þótti gríðarlegt efni áður fyrr og lék meðal annars fyrir Víking R., Breiðablik og KA auk þess að spila 29 leiki fyrir unglingalandsliðin.

Hann hefur glímt við mikið af meiðslum á ferlinum en hann hefur verið hjá ÍR síðustu fjögur ár. Stebbi er fæddur 1995 og hefur verið að gera flotta hluti á undirbúningstímabilinu þar sem hann er markahæsti leikmaður ÍR-inga.

Stebbi spilaði aðeins einn deildarleik á síðustu leiktíð og verður áhugavert að sjá hvort honum takist að halda sér frá meiðslum í sumar.

ÍR endaði í sjötta sæti Lengjudeildarinnar í fyrra jafnt Keflavík á stigum, aðeins þremur mörkum frá umspilssæti fyrir efstu deild.


Slapp
banner
banner