Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 14. apríl 2026 16:00
Kári Snorrason
Úlfarnir geta formlega fallið um helgina
Mynd: EPA
Wolves gæti fallið úr ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi. Úlfarnir sitja á botni deildarinnar með aðeins 17 stig eftir 32 leiki og er 15 stigum frá öruggu sæti þegar einungis sex umferðir eru eftir.

Liðið setti met eftir að hafa verið án sigurs í fyrstu nítján leikjum sínum og gerði félagið góða atlögu að ellefu stiga meti Derby. Þrátt fyrir dauðakippi síðustu vikna virðist fall vofa yfir Úlfunum.

Ofurtölva Opta skefur ekki utan af hlutunum og telur 100% líkur á að Úlfarnir falli úr ensku úrvalsdeildinni.

Wolves getur mest náð 35 stigum á tímabilinu en liðið mætir Leeds, sem er jafnframt í fallbaráttu, um komandi helgi.

Fari svo að Wolves vinni Leeds, tryggir liðið sér að minnsta kosti eina umferð í viðbót á lífi í deildinni. Tapi Wolves gegn Leeds þarf West Ham þarf aðeins jafntefli til að staðfesta fall liðsins niður í næst efstu deild.

Jafntefli þýðir að ef Nottingham Forest tapar ekki á heimavelli gegn Burnley og West Ham United vinnur Crystal Palace, falla Úlfarnir á mánudag.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
9 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
10 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner
banner
banner