Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   þri 14. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM í dag - Stórleikur í Svíþjóð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM í dag og í kvöld.

Það eru gríðarlega spennandi leikir á dagskrá í A-deildinni þar sem Svíar mæta Dönum í nágrannaslag á meðan Þýskaland etur kappi við nágranna sína frá Austurríki.

Holland spilar við Frakkland í spennandi leik og er Noregur á heimavelli gegn Slóveníu.

Finnland spilar við Slóvakíu í B-deildinni en þar má einnig finna Portúgal og Sviss auk Skotlands og Belgíu sem eigast við í innbyrðisviðureign.

Að lokum eiga Færeyjar heimaleik við Grikkland í C-deildinni og eru Króatía og Ungverjaland á meðal meðal þjóða sem mæta einnig til leiks.

Undankeppni HM - A deild
16:00 Noregur - Slóvenía
16:00 Pólland - Írland
16:15 Þýskaland - Austurríki
16:15 Serbía - Ítalía
17:00 Svíþjóð - Danmörk
18:00 England - Spánn
18:30 Ísland - Úkraína
18:45 Holland - Frakkland

Undankeppni HM - B deild
15:30 Tékkland - Svartfjallaland
15:30 Finnland - Slóvakía
17:00 Lettland - Portúgal
17:00 Sviss - Tyrkland
17:15 Ísrael - Lúxemborg
18:00 N-Írland - Malta
18:15 Wales - Albanía
18:30 Skotland - Belgía

Undankeppni HM - C deild
12:00 Armenía - Belarús
14:00 Búlgaría - Kósovó
14:00 Moldóva - Kýpur
14:00 N-Makedónía - Ungverjaland
15:00 Eistland - Liechtenstein
15:00 Litháen - Bosnía
16:00 Færeyjar - Grikkland
17:00 Andorra - Aserbaídsjan
17:00 Gíbraltar - Króatía
Slapp
banner