City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 20:06
Brynjar Ingi Erluson
Fjögur Íslendingalið í undanúrslitum sænska bikarsins
Kvenaboltinn
Guðrún og stöllur í Hammarby tóku síðasta sætið í undanúrslitin
Guðrún og stöllur í Hammarby tóku síðasta sætið í undanúrslitin
Mynd: Hammarby
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Hammarby eru komnar áfram í undanúrslit sænska bikarsins eftir 3-0 sigur liðsins á Vittsjö í Stokkhólmi í kvöld.

Varnarmaðurinn kom til Hammarby frá Braga í byrjun ársins og var að spila annan leik sinn í bikarnum.

Hún lék allan leikinn í hjarta varnarinnar. Svea Rehnberg skoraði tvö og hin 16 ára gamla Fanny Peterson eitt er Hammarby tryggði sér toppsæti riðilsins með 7 stig.

Hammarby kom sér þannig áfram í undanúrslit bikarsins og verða því fjögur Íslendingalið í undanúrslitum.

Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir leika með Häcken sem unnu sinn riðil, María Catharina Ólafsdóttir Gros vann riðilinn með Djurgården og þá eru Linda Líf Boama, Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir í liði Kristianstad.

Djurgården mun mæta Häcken á meðan Kristianstad spilar við Hammarby í undanúrslitunum. Leikirnir fara fram 22. mars næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner