Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
mánudagur 6. apríl
Mjólkurbikar karla
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
sunnudagur 5. apríl
FA Cup
West Ham - Leeds - 15:30
1. deild
Mónakó - Marseille - 18:45
Metz - Nantes - 15:15
Le Havre - Auxerre - 15:15
Lorient - Paris FC - 15:15
Angers 0 - 0 Lyon
Bundesligan
Frankfurt - Köln - 15:30
Union Berlin 0 - 1 St. Pauli
Serie A
Cremonese 0 - 2 Bologna
Inter - Roma - 18:45
Pisa - Torino - 16:00
La Liga
Valencia 0 - 0 Celta
Oviedo - Sevilla - 16:30
Alaves - Osasuna - 19:00
Getafe 2 - 0 Athletic
Damallsvenskan - Women
Uppsala W 0 - 0 Pitea W
Rosengard W 1 - 0 AIK W
sun 05.apr 2026 09:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

UTAN VALLAR: 75% af tekjum Fram fóru í laun

Í ársreikningi Fram fyrir árið 2025 má sjá að útsendingarréttur og styrkir frá KSÍ hækkuðu um 66 milljónir á milli ára, launahlutfall Fram hækkaði upp í 75,3%, hagnaður nam 11 milljónum króna, handbært fé lækkaði um 41 milljón króna og skuldir lækkuðu um 55%.

Greinin var einnig birt á utanvallar.is

Rekstrartekjur Fram voru 250,2 milljónir króna árið 2025 en þær lækkuðu um ríflega 24,7 milljónir króna á milli ára. Það skal þó hafa í huga að Fram fékk ríkulegan arf í fyrra frá Halldór B. Jónssyni, fyrrum formanni félagsins. Stærsti hluti tekna Fram eru vegna útsendingarréttar og styrkja frá KSÍ sem námu 94,7 milljónum króna á síðasta ári. Fast á hæla þess tekjuliðar kemur tekjuliðurinn Framlög og styrkir en þar voru ríflega 94 milljónir króna tekjufærðar. Þessi tekjuliður hækkaði um 65,8 milljónir króna á milli ára. Þá voru tekjur Fram vegna sölu leikmanna í kringum 25 milljónir króna á síðasta ári.

Rekstrargjöld Fram voru 242,5 milljónir króna á síðasta ári og hækkuðu um hátt í 43 milljónir króna á milli ára, eða tæplega 21,5%. Langstærsti útgjaldaliður Fram eru laun og launatengd gjöld sem voru 188,4 milljónir króna eða 77,7% af útgjöldum Fram á síðasta ári.

Í skýringum ársreikningsins má finna sundurliðun á launagreiðslunum og þar má sjá að verktakagreiðslur eru stærsti einstaki liður, tæplega 76 milljónir króna. Hins vegar eru laun og launatengd gjöld samanlagt ríflega 65 milljónir króna.

Ef litið er á launahlutfall má sjá að það hækkaði 15,7 prósentustig á milli ára og var 75,3% í árslok 2025. Síðustu fimm árin hefur launahlutfallið að meðaltali verið 78,1% og er það í raun árið 2024 sem sker sig úr frá restinni þegar það lækkaði nokkuð hressilega, þökk sé arfinum góða.

Ef leikmannasölur og fjármagnsliðir eru teknir út fyrir sviga, þá hefur uppsöfnuð rekstrarafkoma Fram verið jákvæð um 2 milljónir krónur síðustu fimm árin. Heilt yfir hefur hins vegar afkoma Fram verið jákvæð um 83 milljónir krónur síðustu fimm árin.

Eignir Fram stóðu í 104,8 milljónum króna á síðasta ári, en þær lækkuðu um tæplega 9 milljónir króna á milli ára. Stærsta eign Fram eru viðskiptakröfur sem voru 53 milljónir króna, tæplega helmingur eigna Fram. Þar á eftir er handbært fé næststærsta eign Fram og var 44,6 milljónir króna í árslok 2025. Í sjóðstreymisyfirlitinu má sjá að mestu munar um veltufé frá rekstri á milli ára, enda var mikill hagnaður af rekstrinum árið 2024. Handbært fé Fram lækkaði því um 41,4 milljónir króna árið 2025.

Ef litið er á veltufjárhlutfall Fram má sjá að það var 610,3% í árslok 2025 og hækkaði um 311,8 prósentustig á milli ára. Eignastaða Fram eru orðin verulega sterk.

Skuldir Fram stóðu í 16,3 milljónum króna í árslok 2025 og lækkuðu um tæplega 20 milljónir króna á milli ára. Mestu munaði um skuldir við tengda aðila á milli ára en sú skuld stóð í 25 milljónum króna árið 2024 en var búin að þurrkast út í árslok 2025. Hins vegar hækkuðu viðskiptaskuldir um 131,1% á milli ára.

Þá var skuldahlutfall Fram 15,5% í árslok 2025 og lækkaði um 16,2 prósentustig á milli ára. Síðustu fimm árin hefur skuldahlutfallið að meðaltali verið 50,4%.

Eigið fé Fram skaust allrækilega upp árið 2024 þökk sé góðri rekstrarafkomu. Í árslok 2025 var eigið fé Fram 88,5 milljónir króna og hækkaði um 10,6 milljónir króna á milli ára.



banner