Kólumbíumaðurinn James Rodriguez, fyrrum leikmaður Real Madrid, Bayern og Everton, var fluttur á sjúkrahús í Minnesota á dögunum vegna ofþornunnar.
Rodriguez gekk til liðs við Minnesota í febrúar en hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum.
Hann var með kólumbíska landsliðinu gegn Króatíu og Frakklandi á dögunum en þegar hann sneri aftur til Bandaríkjanna þurfti hann að fara á sjúkrahús.
Talið er að ástand hans fari batnandi en það er ljóst að hann muni ekki geta spilað með liðinu á næstunni. Minnesota er með 8 stig eftir sex leiki í Vesturdeildinni.



