PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 04. apríl 2026 22:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Noslin bjargaði stigi fyrir Lazio
Mynd: EPA
Lazio 1 - 1 Parma
0-1 Enrico Del Prato ('15 )
1-1 Tijjani Noslin ('77 )

Lazio og Parma skildu jöfn í síðasta leik dagsins í ítölsku deildinni.

Parma stjórnaði ferðinni í byrjun og það bar árangur eftir stundafjórðung þegar boltinn datt fyrir Enrico Del Prato inn á teignum og hann skoraði með skoti í hornið.

Mauricio Sarri gerði þrefalda breytingu á liði Lazio eftir klukkutíma leik.

Tijjani Noslin kom m.a. inn á en hann bjargaði stigi fyrir liðið þegar tæplega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktima. Hann skoraði með skoti sem fór af varnarmanni og tók Zion Suzuki, markvörð Parma, úr jafnvægi.

Lazio er í 8. sæti meeð 44 stig eftir 31 umferð. Parma er í 12. sæti með 35 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 34 21 6 7 52 33 +19 69
3 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 33 14 6 13 42 39 +3 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
14 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Lecce 33 7 7 19 22 46 -24 28
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
20 Pisa 33 2 12 19 24 60 -36 18
Slapp
banner
banner