PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 04. apríl 2026 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Tvö mörk í uppbótatíma tryggðu Dortmund sigurinn
Julian Brandt
Julian Brandt
Mynd: EPA
Stuttgart 0 - 2 Dortmund
0-1 Julian Brandt ('90 )
0-2 Karim Adeyemi ('90 )

Það var mikil dramatík þegar Dortmund lagði Stuttgart í toppbaráttuslag í þýsku deildinni í kvöld.

Stuttgart var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en staðan var markalaus þegar flautað var til hálfleiks.

Það stefndi allt í að leiknum myndi ljúka með markalausu jafntefli en Karim Adeyemi kom Dortmund yfir þegar fjórar mínútur voru liðnar af uppbótatímanum.

Julian Brandt ætlar að kveðja Dortmund með stæl en hann mun yfirgefa félagið eftir tímabilið. Hann innsiglaði sigurinn þegar hann skoraði með góðu skoti úr þröngu færi.

Dortmund er í 2. sæti með 64 stig, níu stigum á eftir Bayern. Stuttgart er í 4. sæti með 53 stig, aðeins þremur stigum á undan Hoffenheim í baráttunni um Meistaradeildarsæti.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 30 25 4 1 109 29 +80 79
2 Dortmund 30 19 7 4 61 31 +30 64
3 RB Leipzig 31 19 5 7 62 38 +24 62
4 Stuttgart 30 17 5 8 62 42 +20 56
5 Hoffenheim 30 16 6 8 59 44 +15 54
6 Leverkusen 30 15 7 8 60 41 +19 52
7 Freiburg 30 12 7 11 44 48 -4 43
8 Frankfurt 30 11 9 10 55 57 -2 42
9 Augsburg 30 10 6 14 38 54 -16 36
10 Mainz 30 8 10 12 36 45 -9 34
11 Union Berlin 31 8 8 15 35 55 -20 32
12 Köln 30 7 10 13 44 51 -7 31
13 Gladbach 30 7 10 13 36 50 -14 31
14 Hamburger 30 7 10 13 33 48 -15 31
15 Werder 30 8 7 15 35 53 -18 31
16 St. Pauli 30 6 8 16 26 51 -25 26
17 Wolfsburg 30 6 6 18 41 66 -25 24
18 Heidenheim 30 4 7 19 33 66 -33 19
Slapp
banner
banner
banner