Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Unnu líklega besta lið Evrópu - „Erum að fara á Wembley"
Ross Stewart í baráttunni gegn Everton
Ross Stewart í baráttunni gegn Everton
Mynd: EPA
Championship liðð Southampton vann Arsenal, toppliðið í úrvalsdeildinni, í átta liða úrslitum enska bikarsins í gær.

Ross Stewart kom Southampton yfir en Viktor Gyökeres jafnaði metin áður en Shea Charles tryggði Southampton sigurinn.

Stewart var að vonum gríðarlega ánægður eftir leikinn. Átta liða úrslitin klárast í dag og svo verða það undanúrslitin sem fara fram á Wembley.

„Við ræddum saman fyrir leikinn, hvað það myndi þýða að vinna líklega besta lið Evrópu um þessar mundir, við munum njóta. Stjórinn hefur verið magnaður taktískt síðan hann kom og nú erum við að far á Wembley, alveg magnað," sagði Stewart.
Slapp
banner
banner