Steven Gerrard, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá félaginu en hann segist vera tilbúinn að skoða það að vera aðstoðarþjálfari.
Arne Slot er undir mikilli pressu en tímabilið hefur verið mikil vonbrigði. Ríkjandi Englandsmeistararnir eru í baráttu um að vinna sér sæti í Meistaradeildinni fyrir næsta tímabil og liðið féll úr leik í enska bikarnum í gær eftir slæmt tap gegn Man City.
„Ég er í mjög góðu sambandi við félagið, líklega sterkara síðan ég fór. Ég reyni alltaf að hjálpa eins og ég get. Þið viljið væntanlega vita hvort ég vilji stýra liðinu einn daginn? Auðvitað, það væri draumur," sagði Gerrard.
„Væri ég klár í það núna? Líklega ekki. En er möguleiki að vinna með einhverjum úrvasstjóra? Það fer eftir því hver það er og hvernig samtalið fer, þarf hann á mér að halda? Hvað telur hann að ég hafi upp á að bjóða?"


