Gleðilega páska kæru lesendur. Vonandi njótið þið vel í faðmi fjölskyldunnar. Hér er allt það helsta í slúðrinu í dag en það verður að segjast að það er ansi rólegt um að vera.
Man Utd er að skoða mögulega arftaka fyrir Bruno Fernandes og er Mateus Fernandes (21) hjá West Ham einn þeirra sem kemur til greina (Sun)
Michael Owen, fyrrum leikmaður Liverpool, vonast til að Xabi Alonso taki við af Arne Slot sem stjóri Liverpool ef liðinu mistekst að ná Meistaradeildarsæti (Star on Sunday)
Chelsea hefur áhuga á að fá bakvörðinn Valentin Barco (21) frá systurfélaginu Strasbourg. (Talksport)
Inter Milan vill fá Guglielmo Vicario (29) frá Tottenham í markið hjá sér. (CalcioMercato)
Liverpool vonast til að fá ítalska hægri bakvörðinn Marco Palestra (21) frá Atalanta í sumar. (CaughtOffside)
Manchester United er eitt af þeim félögum sem er að fylgjast með Tom Atcheson (19), varnarmanni Blackburn. (Teamtalk)
Sunderland gæti reynt að fá Sergio Arribas (24), sóknarsinnaðan miðjumann frá Almeria á Spáni. Florent Ghisolfi, yfirmaður fótboltamála hjá Sunderland, hefur lengi haft áhuga á leikmanninum. (Sport Witness)
Arsenal ætlar að berjast við Liverpool um Anthony Gordon (25), framherja Newcastle. (Football Transfers)



