Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson var mjög svekktur þegar hann ræddi við danska fjölmiðla eftir 2-2 jafntefli gegn SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í gær.
Midjylland er í 2. sæti dönsku deildarinnar með 48 stig, fjórum stigum á eftir AGF sem á leik til góða.
Midjylland er í 2. sæti dönsku deildarinnar með 48 stig, fjórum stigum á eftir AGF sem á leik til góða.
Midtjylland komst í 2-0 í leiknum en kastaði frá sér forystunni. „Mér finnst barnalegt að við hættum að gera það sem við áttum að gera," sagði Elías pirraður eftir leik.
„Allir vita hvað þeir eiga að gera. Við verðum að skoða þetta betur á morgun."
Þetta voru skelfileg úrslit fyrir Elías og félaga í baráttunni um danska meistaratitilinn en AGF er svo sannarlega með yfirhöndina núna.


