Það hafa orðnar miklar breytingar á FH-liðinu í vetur. Jóhannes Karl Guðjónsson tók við af Heimi Guðjónssyni sem þjálfari liðsins. Þá fóru nokkrir reynslumiklir leikmenn frá liðinu.
Margir áhugaverðir leikmenn hafa komið til liðsins í vetur. FH vann Þór 4-2 í Mjólkurbikarnum í gær en Jóhannes Karl var spurður að því hvort hann myndi bæta við sig leikmönnum fyrir tímabilið í Bestu deildinni.

Lestu um leikinn: Þór 2 - 4 FH
„Við erum aðeins að fylgjast með því hvort við getum bætt við einum leikmanni þangað til glugginn lokar. Við erum samt með hörkugóðan hóp og virkilega sátt með unga stráka í bland við reynslu," sagði Jói Kalli.
„Gaman að sjá Flóka koma inn í lokin. Hann er hörkugóður leikmaður. Hann hefur gleymst svolítið í umræðunni en hann er hörkugóður og búinn að vera mikill leiðtogi í gegnum smá meiðsli hjá sjálfum sér. Það er gaman að sjá hann koma til baka og hópurinn er flottur."