Reece James, fyrirliði Chelsea, verður ekki með í leiknum gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni þar sem hann er meiddur aftan í læri og verður frá í einhverjar vikur.
Chelsea tekur á móti PSG á morgun í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum eftir að hafa tapað 5-2 í fyrri leiknum.
Chelsea tekur á móti PSG á morgun í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum eftir að hafa tapað 5-2 í fyrri leiknum.
James skrifaði á dögunum undir nýjan sex ára samning við Chelsea en mun ekki geta tekið þátt í leiknum mikilvæga á morgun.
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, viðurkenndi á fréttamannafundi í dag að meiðsli James væru nokkuð slæm. Þetta er í tíunda sinn sem James fer á meiðslalistann vegna meiðsla aftan í læri síðan í lok ársins 2020.
Hann mun missa af vináttulandsleikjum Englands gegn Úrúgvæ og Japan og ljóst að meiðsli hans setja mögulega þátttöku á HM í sumar í verulega hættu.
Malo Gusto er veikur og æfði ekki með Chelsea í dag. Jamie Gittens og Filip Jörgensen tóku heldur ekki þátt í æfingunni. Hinsvegar var Estevao Willian með.
Athugasemdir


