City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 20:51
Brynjar Ingi Erluson
Þór að fá unglingalandsliðsmann á láni frá Rosenborg
Magnus Holte er á leið í Þór
Magnus Holte er á leið í Þór
Mynd: Rosenborg
Nýliðar Þórs í Bestu deildinni eru að fá norska unglingalandsliðsmanninn Magnus Holte á láni frá Rosenborg í Noregi en þetta herma heimildir Fótbolta.net

Holte er 19 ára gamall stór og stæðilegur framherji sem gekk í raðir Rosenborg fyrir fimm árum síðan.

Hann var á láni hjá norska B-deildarliðinu Hödd á síðustu leiktíð þar sem hann gerði eitt deildarmark og tvö mörk í bikarnum.

Þá hefur hann spilað 13 leiki og skorað eitt mark með aðalliði Rosenborg ásamt því að hafa raðað inn fyrir varaliðið í neðri deildunum.

Árið 2022 varð hann yngsti leikmaður í sögu Rosenborg til þess að spila í norsku úrvalsdeildinni þá aðeins 16 ára og 175 daga gamall.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Holte á leið til Þórs á láni út tímabilið. Sterk viðbót við hópinn hjá Þór sem vann Lengjudeildina á síðasta ári.

Holte á 15 landsleiki og eitt mark að baki með yngri landsliðum Noregs. Hann lék alla leiki U20 ára liðsins sem komst alla leið í 8-liða úrslit HM á síðasta ári.
Athugasemdir
banner