„Þetta voru eiginlega vonbrigði," sagði Kristófer Eggertsson leikmaður Víkings Ólafsvíkur eftir markalaust jafntefli við Gróttu í 1. deildinni síðdegis í dag.
„Við byrjuðum illa og vorum ekki mættir fyrstu 20 mínúturnar þar sem við töpuðum öllum seinni boltum og gátum ekki neitt."
„Þegar leið á hálfleikinn komumst við meira inn í leikinn og áttum eiginlega restina af leiknum."

Lestu um leikinn: Grótta 0 - 0 Víkingur Ó.
„Þegar tuttugu metrar eru í markið erum við ekki að ná að skapa neitt."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.