City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   þri 17. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Dembele um framtíðina: Ég sé ekki um viðræðurnar
Mynd: EPA
Ousmane Dembele, besti fótboltamaður heims, segist ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér og að hann komi ekki nálægt samningaviðræðum við Paris Saint-Germain.

Dembele vann Ballon d'Or-verðlaunin undir lok síðasta árs eftir að hafa unnið þrennuna með PSG.

Þessi 28 ára gamli Frakki er samningsbundinn PSG til 2028, en hann var spurður út í framtíð sína á dögunum og var hreinskilinn varðandi viðræðurnar.

Hann segist ánægður hjá PSG en að hann viti þó ekki alveg hvað mun gerast í framtíðinni.

„Það er engin ástæða til að vera ekki áfram hjá PSG, en það er ekki ég sem sér um samningaviðræðurnar eða tekur ákvarðanir varðandi framtíðina,“ sagði Dembele.

„Ég hef ekki komið að samningaviðræðum síðan ég hóf ferilinn og eru viðræður um mín samningamál milli félagsins og umboðsmanns míns,“ sagði Frakkinn í lokin.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner