Fótboltasamband Írans hefur staðfest að vera í viðræðum við FIFA um að leikir landsliðs þjóðarinnar á HM verði færðir frá Bandaríkjunum til Mexíkó af öryggisástæðum.
Vafi er um þátttöku Írans á mótinu eftir að Bandaríkin gerðu, ásamt Ísrael, loftárásir á landið. Átök ríkja í Mið-Austurlöndum og Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur sagst ekki geta tryggt öryggi leikmanna íranska landsliðsins á HM.
Keppnin verður haldin í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Íran á að vera í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Nýja Sjálandi. Liðið á samkvæmt dagskrá að spila tvo leiki í Los Angeles og einn í Seattle.

Forseti íranska fótboltasambandsins, Mehdi Taj, útilokar að íranska liðið ferðist til Bandaríkjanna við núverandi aðstæður.
„Þegar Donald Trump hefur sjálfur sagt að hann geti ekki tryggt öryggi íranska landsliðsins, er ljóst að við munum ekki ferðast til Bandaríkjanna,“ segir Taj.
Íranska sambandið segist vera í viðræðum við FIFA um að spila sína leiki í Mexíkó en FIFA hefur enn ekki staðfest þetta. HM fer af stað þann 11. júní.
Athugasemdir