Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Juventus í viðræðum við fyrirliða Roma
Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus hefur hafið viðræður við Lorenzo Pellegrini, fyrirliða Roma, en samningur hans rennur út í sumar. Þetta segir Gazzetta dello Sport.

Pellegrini er 29 ára gamall miðjumaður sem kemur úr akademíu Roma.

Hann hóf feril sinn með aðalliðinu og tók síðan tvö tímabil með Sassuolo áður en hann sneri aftur heim.

Miðjumaðurinn tók við fyrirliðabandinu hjá Roma árið 2021 og spilað tæpa 350 leiki fyrir félagið og skoraði 60 mörk.

Samningur hans rennur út eftir tímabilið og eins og staðan er núna er ólíklegt að hann muni framlengja, en Gazzetta dello Sport segir að Juventus sé búið að setja sig í samband við leikmanninn.

Luciano Spalletti, þjálfari Juventus, er mikill aðdáandi ítalska landsliðsmannsins og hefur áður þjálfað hann þegar hann stýrði landsliðinu.

Pellegrini þénar um fjórar milljónir evra í árslaun og ætti Juventus að ráða við svipaðan launapakka og sérstaklega í ljósi þess að hann er fáanlegur á frjálsri sölu í sumar.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner