Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 07:51
Elvar Geir Magnússon
Pakkaði saman City en þurfti að brjótast út úr skelinni og finna trú á sjálfum sér
Einn sá vanmetnasti í bransanum.
Einn sá vanmetnasti í bransanum.
Mynd: EPA
Magnaður leikmaður.
Magnaður leikmaður.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Í kvöld klukkan 20 verður seinni leikur Manchester City og Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Real er með öll spil á hendi eftir 3-0 sigur í fyrri leiknum.

Úrúgvæski landsliðsmaðurinn Federico Valverde stal þar senunni með þrennu í fyrri hálfleik en þetta var fyrsta þrenna þessa 27 ára leikmanns á ferlinum.

Það er óhætt að segja að Valverde hafi lengi verið vanmetin hetja í liði Real Madrid, hann er með gríðarlega hlaupagetu og sannur liðsmaður sem vill ekki baða sig í stjörnuljóma.

Fótboltasérfræðingurinn Guillem Balague fer yfir vegferð Valvarde í grein á vefsíðu BBC.

Litli fuglinn
Hann ólst upp í Montevideo í Úrúgvæ en það var ekki mikill peningur milli handanna í fjölskyldu hans; faðir hans var öryggisvörður í spilavíti og móðir hans vann við ræstingar.

Fótboltahæfileikar Valverde komu fljótt í ljós og einn af þjálfurum hans gaf honum gælunafnið 'Pajarito' eða litli fuglinn. Faðir hans var ekki hrifinn af því gælunafni þar sem hann vildi sjá hörku frá syni sínum.

„Hann kenndi mér að baráttuandi væri mér í blóð borinn. Hann setur enn í dag þrýsting á mig. Hann segir mér að skjóta meira, halda áfram að bæta mig," segir Valverde um föður sinn.

Náði ekki að sannfæra Arsenal
Þrátt fyrir að vera þindarlaus í dag og hlaupa um allan völl þá var Valverde ekki hrifinn af miklum hlaupum þegar hann var yngri. Hann taldi að hæfileikar sínir væru nóg. „Mér fannst ég vera með Maradona hæfileika," sagði Valverde.

Hugarfar hans breyttist þegar þjálfarinn hans tók hann eitt sinn út af því hann var ekki að hlaupa til baka.

Þegar hann var 16 ára gamall fór hann til reynslu hjá Arsenal í viku. Hann taldi sig hafa fundið rétta staðinn fyrir sig en Arsenal var á öðru máli, hann náði ekki að sannfæra þjálfara enska stórliðsins.

Fékk sálfræðiaðstoð
Þegar Valverde var með U17 liði Úrúgvæ í Suður-Ameríkukeppninni fékk hann heimsókn á hótelið. Sú heimsókn var frá Real Madrid. Þarna kom tækifærið sem fjölskylda hans hafði beðið eftir.

Það var þó hægara sagt en gert að fóta sig hjá spænska stórliðinu. Þegar hann var í klefanum hjá Castilla, varaliði Real Madrid, leit hann í kringum sig og sá Gucci belti, rándýr úr og flottar merkjavörur. Hann sjálfur var klæddur í ódýran bol.

„Þarna hugsaði ég að ég væri ekkert merkilegur," sagði Valverde. Hann lék á láni eitt tímabil með Deportivo La Coruna en svo kom skellur þegar hann var ekki valinn í úrúgvæska landsliðshópinn fyrir HM 2018.

Sjálfstraustið hrapaði og hann efaðist um að hann ætti heima hjá Real Madrid. Hann var hræddur um að gera mistök og taldi sig hafa brugðist fjölskyldu og vinum. Mina Bonino, unnusta hans, hjálpaði honum að brjótast út úr skelinni.

„Það er ástæða fyrir því að þú sért hjá Real Madrid. Hættu að fela þig. Farðu að njóta fótboltans eins og þú gerðir þegar þú varst strákur," sagði Mina við hann.

Valverde fékk aðstoð frá íþróttasáfræðingum og hugarþjálfurum og einnig trú og traust frá þáverandi stjóra Real Madrid, Julen Lopetegui, sem gaf honum hans fyrsta aðalliðsleik fyrir félagið. Sjálfstraustið jókst og Valverde sprakk út.

Fæddist ekki til að verða bakvörður
Valverde hefur unnið fjölda titla með Real Madrid, þrisvar orðið Spánarmeistari og tvisvar unnið Meistaradeildina. Undir stjórn Xabi Alonso, sem tók við Real Madrid síðasta sumar, náði Valverde hinsvegar ekki að sýna sínar bestu hliðar.

„Ég fæddist ekki til að verða hægri bakvörður," sagði Valverde á fréttamannafundi eftir að Alonso lét hann spila í bakverðinum. Hann var augljóslega ekki ánægður með hlutverk sitt undir stjórn Alonso.

Alvaro Arbeloa setti hann aftur í sína uppáhalds stöðu á miðsvæðinu til að hjálpa honum að springa út eins og hann gerði á svo magnaðan hátt síðasta miðvikudag.

Valverde sýningin:


Svipmyndir úr leiknum:

Athugasemdir
banner
banner