Antonio Rüdiger, varnarmaður Real Madrid, sakar Diego Rico, kollega sinn hjá Getafe, um ýkjur.
Getafe vann Real Madrid 1-0 í byrjun mánaðarins en í leiknum fór Rüdiger með hné í andlitið á Rico sem lá í grasinu.
Rico sagði eftir leikinn að ef hann hefði verið í stöðu Rüdiger þá hefði hann fengið tíu leikja bann og að þarna hafi þýski varnarmaðurinn viljandi reynt að meiða hann.
Þjóðverjinn hefur svarað Rico en hann segist aldrei hafa ætlað að meiða hann.
„Diego Rico talaði eins og ég hafi drepið hann. Ef markmið mitt hefði verið að meiða hann þá hefði hann aldrei staðið upp,“ sagði Rüdiger.
Segundo partido de Liga que juega Rudiger de titular después de agredir a Diego Rico y no ser sancionado, el Real Madrid adultera todas las competiciones.pic.twitter.com/YvZmJghDlW
— Zona Blaugrana (@Zona_Blaugrana) March 14, 2026
Athugasemdir


