Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 19:31
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: KR-ingar skoruðu fimm gegn Þór - Meistararnir sóttu þrjú stig á Akureyri
Aron Sigurðar var frábær hjá KR
Aron Sigurðar var frábær hjá KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Isaac Atanga skoraði fyrir Þór
Isaac Atanga skoraði fyrir Þór
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Elías Már skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Víking
Elías Már skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Víking
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór skoraði annan leikinn í röð
Gylfi Þór skoraði annan leikinn í röð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er með fullt hús stig eftir tvær umferðir í Bestu deild karla eftir að hafa unnið sannfærandi 5-2 sigur á nýliðum Þórs á Meistaravöllum í kvöld. Íslandsmeistarar Víkings unnu þá góðan 2-0 sigur á KA á Greifavelli með mörkum á lokakafla leiksins.

Vesturbæjarliðið ætlar sér stóra hluti á leiktíðinni eftir frábært undirbúningstímabil.

Amin Cosic, sem kom frá Njarðvík á síðasta ári, kom KR-ingum á bragðið á 12. mínútu eftir hornspyrnu. Aron Sigurðarson átti hornspyrnu sem Finnur Tómas Pálmason skallaði í átt að marki, en hann fékk boltann síðan aftur og kom honum á Amin sem braut ísinn.

Það kom mikill kraftur í Þórsara í kjölfarið sem fengu sannarlega færin til að jafna. Sigfús Fannar Gunnarsson átti skot úr þröngu færi í hliðarnetið og nokkrum mínútum síðar setti hann boltann í stöng.

KR-ingar svöruðu á 34. mínútu með öðru marki sínu er hann stangaði fyrirgjöf Luke Rae í netið. KR-ingar gátu bætt við mörkum áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks en fóru illa með færin.

Í síðari hálfleik rúlluðu þeir síðan yfir Þórsara. Rae skoraði þriðja markið með góðu skoti fyrir utan teig og síðan komið fjórða markið á 69. mínútu er Aron Sigurðarson skoraði úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

Ingimar Arnar Kristjánsson minnkaði muninn fyrir Þór. Isaac Atanga vippaði boltanum yfir Halldór Snæ Georgsson og í stöngina áður en Ingimar mætti og kom boltanum í netið.

Tíu mínútum fyrir leikslok gerðu KR-ingar fimmta og síðasta mark sitt í leiknum er Ástbjörn Þórðarson stangaði hornspyrnu Arons í netið. Á lokamínútunum gerði Atanga annað mark sem var ekkert meira en sárabótarmark fyrir Þórsara eftir fyrirgjöf Ingimars og þar við sat.

Annar sigur KR-inga staðreynd sem eru í efsta sæti Bestu deildarinnar með fullt hús stiga en Þórsarar með þrjú stig.

Víkingar kláruðu KA í lokin

Íslandsmeistarar Víkinga unnu KA, 2-0, á Greifavellinum þökk sé mörkum frá Gylfa Þór Sigurðssyni og Elíasi Má Ómarssyni á lokakafla leiksins.

Bæði lið fengu færi í fyrri hálfleiknum en vantaði upp á ákvarðanatöku. Danijel Dejan Djuric komst næst því hjá KA undir lok fyrri hálfleiksins en náði ekki að stýra boltanum á markið eftir sendingu frá Samuel Kroon.

Í þeim síðari fengu Víkingar nokkur ágætis færi þar á meðal Daníel Hafsteinsson en Steinþór Már Auðunsson var vel í markinu. Fáeinum mínútum síðar fengu Víkingar vítaspyrnu.

Steinþór fór út á móti Valdimar Þór Ingimundarsyni og kom í veg fyrir skotið en tók Valdimar með sér og vítaspyrna dæmd. Gylfi sendi Steinþór í vitlaust horn og kom Víkingum yfir.

Varamaðurinn Elías Már Ómarsson gulltryggði stigin þrjú með marki undir lok leiks. Helgi Guðjónsson setti boltann utarlega í teiginn á Elías Má sem stangaði boltann í netið. Steinþór fremur illa staðsettur og átt því ekki möguleika á að verja.

Niðurstaðan á Greifavelli, 0-2, Víkingum í vil sem eru með fjögur stig úr tveimur leikjum en KA án stiga.

KA 0 - 2 Víkingur R.
0-1 Gylfi Þór Sigurðsson ('76 , víti)
0-2 Elías Már Ómarsson ('87 )
Lestu um leikinn

KR 5 - 2 Þór
1-0 Amin Cosic ('12 )
2-0 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('34 )
3-0 Luke Morgan Conrad Rae ('51 )
4-0 Aron Sigurðarson ('69 , víti)
4-1 Ingimar Arnar Kristjánsson ('75 )
5-1 Ástbjörn Þórðarson ('80 )
5-2 Isaac Atanga ('93 )
Lestu um leikinn
Besta deildin
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fram 2 1 0 1 6 - 4 +2 4
2.    Víkingur R. 2 1 0 1 3 - 1 +2 4
3.    KR 1 1 0 0 3 - 2 +1 3
4.    Stjarnan 1 1 0 0 3 - 2 +1 3
5.    Þór 1 1 0 0 2 - 1 +1 3
6.    Valur 2 1 1 0 3 - 3 0 3
7.    ÍA 1 0 0 1 3 - 3 0 1
8.    Breiðablik 1 0 0 1 1 - 1 0 1
9.    FH 1 0 0 1 1 - 1 0 1
10.    ÍBV 2 0 1 1 2 - 3 -1 1
11.    Keflavík 2 0 2 0 3 - 6 -3 0
12.    KA 2 0 2 0 2 - 5 -3 0
Slapp