Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Eru með plan með hann og án hans
Morgan Gibbs-White.
Morgan Gibbs-White.
Mynd: EPA
Aston Villa og Nottingham Forest mætast á morgun í seinni undanúrslitaleik liðanna í Evrópudeildinni.

Stóra spurningin hjá Nottingham Forest er hvort Morgan Gibbs-White verði leikfær. Hann lenti í samstuði við Robert Sanchez, markvörð Chelsea, í 3-1 sigri Forest á mánudaginn. Báðir leikmenn þurftu að fara af velli.

Gibbs-White hlaut ljótan skurð og þurfti að sauma í andlit hans.

Vítor Pereira stjóri Forest var spurður að því á fréttamannafundi í dag hvort Gibbs-White yrði leikfær?

„Við sjáum til. Það verður tekin ákvörðun á morgun. Þetta er ekki ákvörðun sem liggur hjá mér, þetta er ákvörðun milli leikmannsins og læknateymisisn. Við erum með áætlun með hann og án hans," segir Pereira.
Slapp
banner
banner