Atlético Madrid var slegið úr leik í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi eftir 1-0 tap gegn Arsenal á Emirates leikvanginum.
Atlético komst nálægt því að skora jöfnunarmark í leiknum en tókst ekki. Spánverjarnir vildu tvisvar sinnum fá dæmda vítaspyrnu í leiknum og var Diego Simeone þjálfari ekki sammála stærstu ákvörðunum dómarateymisins, með Daniel Siebert á flautunni og Bastian Dankert í VAR-herberginu.
05.05.2026 20:26
Sjáðu ótrúlegt klúður Simeone - Átti að dæma víti?
Það var mikil dramatík í fyrri leik liðanna í Madríd sem lauk með 1-1 jafntefli eftir tvö vítaspyrnumörk.
Leikmenn og stuðningsmenn Atlético eru hissa að þeir hafi ekki fengið dæmda vítaspyrnu í kvöld. Fyrst vildu þeir fá dæmt brot þegar Gabriel truflaði Giovanni Simeone í dauðafæri og skömmu síðar vildu þeir aftur fá dæmda vítaspyrnu þegar Antoine Griezmann féll til jarðar eftir augljóst brot Riccardo Calafiori.
Siebert dæmdi þó ekki víti, heldur dæmdi hann Marc Pubill leikmann Atlético brotlegan eftir samskipti hans við Gabriel.
Þegar endursýningin er skoðuð kemur í ljós að það var ekki mikil snerting hjá Pubill á Gabriel áður en boltinn datt til Griezmann.
05.05.2026 22:43
Diego Simeone: Vitum allir að þetta var brot
Atletico Madrid penalty shout vs Arsenal 56'
by
u/977x in
soccer




